Ný síða !
Erum búnar að færa okkur og komnar með nýja síðu og slóð :
WWW.GELLURSEMTRUKKA.COM !
Vá, FINALLY !
Það er alveg OF langt síðan við komum með einhverja færslu hérna inná, enda verður eiginlega að viðurkennast að það er hálf erfitt að finna skemmtileg umræðuefni í öllu þessu krepputali - við reynum þó okkar besta. Það er þó ekki eina ástæðan fyrir þessum seinagangi í okkur, prófin settu mark á fyrripart desember, skóli og vinna hófst á ný á nýju ári og svo má auðvitað ekki gleyma hátíðunum. En þar sem það er svo langt síðan seinast ætlum við að koma með smá létt blogg bara, og segja ykkur svona örlítið af okkur, hvað hefur drifið á daga okkar undanfarið og hvað við erum að bralla þessa dagana.
Dísa : Allt mjög gott að frétta af mér og mínum. Ég slapp fyrir horn í kreppunni, átti viku eftir af uppsagnarfrestinum þegar þeir drógu hana tilbaka og báðu mig um að vera áfram. Þannig að ég sit enn hér niður í Ingvari Helgasyni að svara í síma fyrir verkstæði B&L. Þeir báðu mig líka um að vinna klukkutíma lengur þannig að ég er komin með manneskju í vinnu við að sækja dótturina til dagmömmunnar. Sölvi minn er enn að vinna hjá SV bílum en frá og með 1. febrúar verður hann bara í 50 % vinnu ef að verkefnastaðan hjá fyrirtækinu verður léleg. Það er þó vonandi að til þess komi ekki þó að það væri nú ágætt að hafa kallinn heima að þvo þvott og skúra ! Ég vil líka segja við þá sem að eru að glíma við atvinnuleysi eða fjárhagsörðuleika að öll él styttir upp um síðir, hlutirnir geta orðið mjög svartir en trúið mér ljósið á eftir að lýsa. hugsa bara jákvætt og reyna að vera kát og glöð.
Linda : Ég er nú ekki með jafn jákvæðar fréttir og hún Dísa mín. Um miðjan nóvember dó litli Dúddi okkar í aðgerð og það var ótrúlega sárt og með eindæmum erfitt, við eigum þó lítinn voffa núna sem er hálfs árs og heitir Stormur. Mér var svo sagt upp hjá GV Gröfum fyrir áramót og hætti þar um mánaðarmótin nóvember / desember. Ég hafði verið í þremur fögum með vinnunni og stefndi bara á að rumpa prófunum af þarna í desember og kláraði það sem ég ætlaði mér. Ég ákvað þó að nýta tækifærið og líta á jákvæðu hliðarnar og skellti mér í skóla bara áfram að klára stúdentinn minn. Ég er að stefna á að útskrifast í sumar gangi allt að óskum. Það leit út fyrir að Steinó slyppi með skrekkinn þegar Ingi Rúnar neyddist til að segja honum upp sökum slæmrar verkefnastöðu. Hann fékk vinnu hjá KM Malbikun í lok október þar sem hann var ráðinn í snjómokstur uppá Öxnadalsheiði og hann fílaði sig í botn þar og allt virtist ganga að óskum þangað til að hann lenti í óhappi fyrir um þremur vikum síðan eins og flestir vita og var svo sagt upp fyrsta daginn í vinnunni eftir slys og hætti núna um mánaðarmótin janúar / febrúar. Hann er þó eitthvað að keyra sementi fyrir Ómar og er alsáttur að komast aftur á þjóðveginn. Ég skellti mér hinsvegar í mótorhjólaprófið fyrir áramótin, það bóklega og vona að maður geti hjólað í sumar. Vona svo að gellurnar hérna skelli sér bara líka og að við getum farið í hjólatúr saman !
Rósa : Ég er auðvitað enn í fæðingarorlofi sem er bara frábært þó mig hlakki nú til að fara að vinna aftur. Elís Örn er að verða 7 mánaða og er alger risi. Sumir nánast gapa þegar ég segi hvað hann er gamall. Hann er sem sagt orðinn 71.5 cm og 9.2 kg - litli kuggurinn hennar mömmu sinnar. Svo er hann kominn með tvær tennur og það eru tvær að brjótast í gegn as we speak. Hann er einnig að ná tökum á að sitja og sýnir smá framfarir við að reyna að skríða af stað, en hann vill samt bara fá að labba. Hann elskar göngugrindina sína því þá getur hann elt mig um íbúðina. Elís fer til dagmömmu í lok mars og ég byrja að vinna snemma í apríl aftur í Hagkaup en ég veit ekkert hvað ég fæ að gera né hvort ég fái svona fínt bréf, en það kemur bara í ljós en ég er ekkert stressuð yfir því. Komi það sem koma skal bara. Ég er svo að hugsa um að byrja í Háskólabrú á Keili og fá stúdentinn til að opna möguleika og fara svo sennilega í framhaldinu á Hóla. Þá er ég allavegana komin með stúdent og get valið hvað ég geri í framtíðinni. Auðvitað eru allar mínar fréttir um litla kút því maður gerir lítið annað en að leika við hann.
Sigrún : Það er nú frekar lítið í fréttum af mér. Próftörnin fyrir jólin var frekar strembin og stutt á milli prófa og ég setti að sjálfsögðu alla mína orku í þau. Fyrir þá sem ekki vita hef ég verið að stunda nám, en ég er lyfjafræðinemi í Háskóla Íslands. Ég held áfram í því námi núna, og ákvað að vera ekkert að reyna að vinna með því það er bæði tímafrekt og svo er náttúrulega líka lítið sem ekkert í boði. Ég fór norður, heim í faðm fjölskyldu og vina, um hátíðirnar og það var frábært ! Ég ætla svo bara að vona að við stelpurnar fáum einhverja vinnu í sumar og að ástandið verði farið að snúast til betri vegar fyrir okkur öll.
Bestu kveðjur !
Við viljum óska ykkur öllum og fjölskyldum ykkar gleðilegrar hátíðar og þakka fyrir komurnar og þátttökuna á síðunni okkar, en við erum mjög þakklátar fyrir það ! Árið er nú senn á enda, og mikil tilhlökkun fyrir nýju ári, sem mun vonandi færa okkur öllum gleði, gæfu og ný tækifæri. Við vonumst að sjálfsögðu til þess að þið fylgist með okkur á nýju ári og vonandi sjáumst við einnig á vegunum ! Við munum koma með fréttir af okkur í byrjun janúar.
Bestu jólakveðjur,
Linda, Sigrún, Rósa og Dísa !
Þannig er nú mál með vexti að það er sett stopp á margt í þessum bransa í dag, fyrirtæki fá ekki að leysa út gámana sem standa á bryggjunum, sumir geta ekki keypt sína vöru því það fæst enginn gjaldeyrir, sveitar- og bæjarfélögin hætta við framkvæmdir sem aldrei fyrr, en það gerir Vegagerð Ríkisins og Ríkið sjálft einnig. Fólk hefur ekki lengur efni á því að byggja fínu húsin sín, og byggingafyrirtæki græða ekkert á því að byggja lengur því það einfaldlega selst ekki. Af þessum völdum minnkar flutningur á lengri leiðum, hvort sem það telst til gámaflutninga eða venjulegs flutnings. Lítið er af grunnum til þess að taka uppúr og keyra ofan í, steypa veggi og græja, og vegaframkvæmdir hafa margar hverjar verið settar á bið sama hversu mikil þörf er á þeim. Hægt væri að halda áfram endalaust að tala um hvernig þetta hefur svo keðjuverkandi áhrif á byggingaraðila, verktakana, flutningsaðila sem flytja efnið í húsin til seljendanna, olíudreifingaraðila, sementsflutninga, verslanirnar og svo framvegis. Þetta allt verður svo til þess að innkoma minnkar, lánin hækka og fækka þarf starfsfólki.
En hversu illa standið þið í dag ? Sérðu fram á að hafa vinnu eftir áramót ?
Höldum að allir geri sér grein fyrir alvöru málsins, en hvað finnst ykkur að mætti gera til þess að reyna að sporna við þessu atvinnuleysi og endalausum gjaldþrotum ? Auðvitað á að reyna að halda í einhver verkefni í staðinn fyrir að hætta við allt, það þarf að reyna að útvega fólk vinnu svo að það endi ekki bara allir á atvinnuleysisbótum - heldur ríkisstjórnin að það sé eitthvað hagstæðara ?
Endilega segið ykkar skoðun, segið frá ykkar stöðu í dag, og allt má þetta vera undir nafnleynd í þetta skiptið. Við afsökum innilega hversu lengi þetta blogg var að koma frá okkur, en getum glatt ykkur með því að það er verið að setja upp athugasemdakerfi við myndirnar sem vonandi verður virkt sem fyrst. Þökkum kærlega fyrir þátttöku ykkar í seinustu könnun þar sem við spurðum hvernig ykkur finndist tilkynningar okkar á Geiranum um uppfærslur á síðunni vera. Alls tóku 88 manns þátt, 54 eða 61% fannst þær þægilegar, 14 eða 16% fannst þær óþarfi, 12 eða 14% fannst þær ekki skipta sig neinu máli og að lokum voru 8 eða 9% sem voru hlutlausir. Vonum að þátttaka í nýrri könnun okkar verði ekki síðri, en við höfum ákveðið að halda áfram að tilkynna um uppfærslur okkar á Geiranum.
Við elskum ykkur öll !
Baráttukveðjur í súru sem sætu,
Linda, Sigrún, Rósa og Dísa.
Laugardaginn 20. september var haldin stórglæsileg trukkasýning við Smáralind í Kópavogi og skelltum við Rósa og Sigrún Ingveldur okkur á hana. Þar mátti finna ýmsa dráttarbíla, kassabíla, rútur, krana og vélar af ýmsum toga. Veðrið var nú frekar dyntótt og dundi meira að segja yfir haglél á tímabili en þá var hægt að skjóta sér inn í boddý frá Jóni og Margeiri og njóta góðra veitinga. Eitt af aðalnúmerum sýningarinnar var glæný Scania R620 frá Heklu. ET var með nokkra bíla á svæðinu ásamt Jóni & Margeiri, Kropptaki, Gámaþjónustunni, Nesfrakt, Smellinum og Jóa Glæp. Mótmælandi Íslands, Sturla, var á svæðinu með Volvoinn sinn og vélavagn sem á var beltagrafa á uppboði.
Sýning sem þessi hefur verið haldin nokkrum sinnum áður hér í borg en þó aldrei komist almennilegt skrið á hana. Það er von allra að þeir sem sáu fyrir þessari sýningu endurtaki leikinn að ári og að þetta verði að árlegum viðburði. Eiga þeir heiður skilið þeir Olli, Hörður og Gestur ásamt auðvitað öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn.
Seinna sama dag var haldið Trukkakvöld Dóra Tjakks á Players og fórum við saman Dísa, Rósa og Sigrún, en Linda komst því miður ekki að norðan. Það var margt um manninn þegar við mættum enda kannski aðeins of seint, en seint koma sumir en koma þó ! Þema kvöldsins var bleikt og mátti alveg merkja það. Stelpurnar á barnum voru allar með bleika hatta og voru nokkrir karlmenn sem tóku áskoruninni um að mæta í bleiku, einn gekk svo langt að mæta í bleikri brók og gæti vel verið að við skellum mynd að því hérna inn. Trukkastelpurnar voru einnig vel merktar með borða og kórónur og voru bara flottar.
Veitt voru verðlaun í keppninni um fallegasta bíllin og úrslitin urðu þessi:
1.sæti: Sigurvin Leifsson á Smellinn BENZ
2.sæti: Sigurbjörn á IVECO
3.sæti: Magga hjá Jón og Margeir á VOLVO
Þessi þrjú áttu þetta svo sannarlega skilið, alveg gullfallegir bílar og vel hugsað um þá. Scania menn og konur verða greinilega að fara taka sig á fyrir næstu keppni ! Reyndar sýndu sumir virkilega barnalega hegðun og púuðu sigurvegarana niður við verðlaunaathöfnina, taki það til sín sem eiga það. Algjörlega óþarfi og fáránlegt í alla staði. Þetta var kosning og svona voru úrslitin og áttu þessi leiðindi svo engan veginn heima þarna.
Dóri Tjakkur fékk einnig viðurkenningarstyttu frá trukkurum fyrir það að vera búin að skipuleggja þessi kvöld síðustu 15 ár. Hann átti þetta svo sannarlega skilið og færum við honum miklar þakkir fyrir. Hann reyndar sagði þegar hann tók við styttunni að hann myndi aldrei gera þetta aftur en það er nú bara ekki tekið gilt, en það mætti nú kannski einhver taka sig til og aðstoða kallinn við það næsta.
Bjórinn rann vel ofan í viðstadda og er ekki annað hægt en að þakka styrktaraðilum kærlega fyrir, án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Kvöldið tókst vel í alla staði og var mjög vel mætt og ætla mætti að allir hafi skemmt sér mjög vel. Gaman að hitta nýja og gamla vinnufélaga og ræða hin ýmsu mál. Hljómsveitin Sixties hélt svo uppi stuðinu langt fram á nótt. Myndir frá kvöldinu eru í myndalbúminu. Við þökkum kærlega fyrir okkur !
Í síðustu færslu fjölluðum við um kvenkyns bílstjóra hér á landi. Þrátt fyrir að konur hafi verið undir stýri í þónokkur ár hér hefur orðið mikil fjölgun undanfarin ár og höfum við líkt því við að nokkurskonar tískubylgja sé í gangi. Við fjölluðum nýlega um skondin viðbrögð sem við sjálfar höfum fengið við vinnu okkar og geta eflaust allar bílstýrur landsins nefnt dæmi um fólk sem missir hökuna í gólfið eða snýr sig nánast úr hálslið við að sjá kvenmann undir stýri á stóru ökutæki. Það virðist því enn vera frekar merkilegt og má í því samhengi nefna fréttir í sjónvarpi og umfjallanir í blöðum um þetta.
Því spurðum við okkur, hvernig ætli þetta sé erlendis ? Séu leitarorðin “female trucker” googluð má finna ýmsar áhugaverðar síður og fréttir. Hægt er að finna myndbönd á afþreyingarvefnum www.YouTube.com af kvensum að keyra við ýmis tækifæri og meira að segja tónlistarmyndband með lagi sem fjallar um kvenkynsbílstjóra ! Þar má meira að segja finna myndbandsbrot tekið úr breskum fréttamiðli, en fréttin er um unga stúlku sem passar ekki í staðalímynd flutningabílstjóra, en hver okkar gerir það svo sem? Þessi frétt svipar mjög til einnar sem var gerð hér á landi í kjölfar innflutnings á bíl sem mönnum þótti vægast sagt sérstakur, bleiki Volvoinn sem kom til landsins síðasta vor. Það áhugaverðasta við bresku fréttina er það að stelpan talar um hversu erfitt sé að losa stólinn á bílnum, það sé sko það erfiðasta við þetta allt saman. Hún notar þá aðferð að festa beltið sitt við handfangið og notar svo allt það afl sem hún getur safnað til að losa stólinn. Mælum með að fólk skoði og látum því slóðina fylgja: http://www.youtube.com/watch?v=vIQ8P_CJtpI.
Aðra áhugaverða frétt er að finna á vefmiðlinum www.egypttoday.com. Hún fjallar um fyrstu og einu konuna sem keyrir flutningabíl í Egyptalandi. Hún er það áhugaverð að tengillinn fylgir hér með http://www.egypttoday.com/article.aspx?ArticleID=8088 tekið 17.08.08. Bendum fólki á að fréttaritaranum þykir það hin mesta kaldhæðni að konan skuli keyra MAN!
Til er heimasíða, www.ladytruckdrivers.com en þar er hægt að leita sér að vinnu, þar er spjall, uppskriftir, slóð á Women in Trucking Association – félag kvenkynsbílstjóra og meira að segja stefnumótaþjónusta ! www.WomenInTrucking.org er svo svipuð síða, en ítarlegri. Þar má finna fréttabréf, greinar, sögur frá trukkakonum, áhugaverðir tenglar og fleira. Það er áhugavert að vita að til sé félag kvenbílstjóra og spurning hvort slíkt félag verði sett á laggir á Íslandi einhverntíman í náinni framtíð. Allavega væri það gaman og jafnvel að hafa hópferð á trukkasýningu úti í heimi – bara stelpur ? Svo er gaman að minnast á að búið er að gefa út myndina Alligator on the Zipper, en hún segir sögur 7 kvenna sem samanlagt hafa ekið 1,4 milljón mílur um Bandaríkin.
Okkur fannst mjög gaman að skoða þetta allt, tölum nú ekki um fróðlegt, og henda þessu fram svo að aðrir geti skoðað sé áhuginn fyrir hendi. Virkilega gaman að horfa á þessi myndbönd, fínasta skemmtiefni. En svona ef við þurfum að benda ykkur á það, ykkur sem hafið ekki tekið eftir því kannski, að þá er komin ný kvensa í hópinn, hún Dísa. Hún er hörkukvendi, eins og við hinar að sjálfsögðu, var áður hjá Háfelli og Skeljungi, en er núna að ala upp litla verðandi trukkaskvísu og auðvitað hann Sölva sinn hjá Byko – fullt djobb það !
En við ljúkum þessu í sinni með niðurstöðum síðustu könnunar, en þar spurðum við á hvaða forsendum fólk teldi flestar stelpur vera í þessum bransa. Um 23%, eða 17 manns, töldu flestar stelpur vera í akstri á röngum forsendum, 41%, eða 30 manns, töldu þær vera á réttum forsendum og 36%, eða 27 manns, sögðu það ekki skipta sig neinu máli. Við settum inn nýja könnun til hliðar og vonumst eftir jafngóðri þátttöku Takk kærlega fyrir góða þáttöku í athugasemdum og könnunum sem við höfum sett inn.
Hún Rósa okkar kom litla prinsinum sínum í heiminn í nótt, en hún var sett þann 7. júlí. Hann fæddist klukkan 04:42 og viktaði 3430 grömm, mældist 50 cm og er sem sagt tæplega 14 merkur. Hann er víst voðalega góður og sætur, eflaust bara þreyttur eftir þessi átök - bíddu bara Rósa, hann lætur sko heyra í sér fljótlega ! Hah. En við höldum að þetta hafi bara allt gengið eins og í sögu hjá þeim mæðginum, meðgangan gekk víst rosalega vel og Rósa kjéllan hefur eflaust staðið sig með eindæmum vel þarna eins og fyrri daginn !
Við hlökkum bara mikið til að fá að sjá krílið, hann er án efa eini drengurinn enn sem komið er sem fær að vera meðlimur hérna, heppinn hann. Erum alveg vissar um að hann verði duglegur og frábær strákur, sterkur og ákveðinn, alveg rétt eins og mamma sín ! Við viljum því óska Rósu okkar innilega til hamingju með þennan æðislega áfanga og frábæra dreng, og óska honum innilega til hamingju með mömmu sína !
Ástarkveðjur til ykkar með von um bjarta framtíð og velgengni,
Linda Björk og Sigrún Ingveldur.